Um Íslenska fjárfestingu ehf.
Íslensk fjárfesting var stofnað árið 1999 í þeim tilgangi að halda utan um ýmsar fjárfestingar eigendanna. Félagið er því orðið 24 ára.
Íslensk fjárfesting hefur markað sér þá stefnu að fjárfesta á fjórum aðalsviðum: Ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignum og nýlega í útivist og hreyfingu.
ÍFJ leitast við að vera meirihlutaeigandi eða í leiðandi stöðu í þeim verkefnum sem það fjárfestir í. Eigendur félagsins leggja mikla áherslu á að styrkja grunnstoðirnar fjórar og fjárfesta því ekki í verkefnum sem heyra ekki undir þessar fjórar grunnstoðir nema í undantekningartilfellum og þá til að styðja við fjárfestingarsviðin fjögur.
Íslensk fjárfesting er fjárfestingarfélag í jafnri eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar.
Stjórn félagsins
Arnar Þórisson, stjórnarformaður
Þórir Kjartansson, meðstjórnandi, framkvæmdastjóri
Íslensk fjárfesting ehf.
Laugavegi 182
105 Reykjavík, Iceland
Sími/tel: +354 514 1470
Fax: +354 514 1478
Netfang: ip@ip.is