Heilbrigðisþjónusta
Sóltún stækkar
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns, tóku fyrstu skóflustunguna að stækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík.
Stækkunin gerir ráð fyrir 67 nýjum hjúkrunarrýmum og verða hjúkrunarrými á Sóltúni þá orðin 159, en eru nú 92. Verklok eru áætluð árið 2027.