Um okkur

Íslensk fjárfesting ehf.

Stefna og eignarhald

Félagið var stofnað árið 1999 í þeim tilgangi að halda utan um ýmsar fjárfestingar eigendanna. Íslensk fjárfesting leitast við að vera meirihlutaeigandi eða í leiðandi stöðu í þeim verkefnum sem það fjárfestir í. Eigendur félagsins leggja mikla áherslu á að styrkja grunnstoðirnar fjórar og fjárfesta því ekki í verkefnum sem heyra ekki undir þær nema í undantekningartilfellum og þá til að styðja við fjárfestingarsviðin fjögur. Íslensk fjárfesting er fjárfestingafélag í jafnri eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar.

Stjórn: Arnar Þórisson, stjórnarformaður · Þórir Kjartansson, meðstjórnandi og framkvæmdastjóri

Sagan í stiklum

2025
Samið um stækkun Sóltúns, framkvæmdir hefjast við hjúkrunarheimilið Hamranes, Flóra tekur yfir 201 hótel og Vatnsstígur 2 fullafhentur.
2024
Fjárfest í nýrri hótelbyggingu við Vatnsstíg 2. Höfuðstöðvar fluttar í Norðurturn í Kópavogi.
2023
Stafir festu kaup á 38 hótelíbúðum við Vatnsstíg/Laugaveg. KILROY opnaði útibú í Bristol.
2021
Nýtt fjárfestingarsvið, Útivist og hreyfing, stofnað með kaupum á Útilífi.
2020
Mörg félög samstæðunnar glímdu við áhrif COVID-19. Öldungur seldi fasteignina Sóltún 2.
2019
Sóltún öldrunarþjónusta tók við rekstri Sólvangs í Hafnarfirði eftir útboð.
2018
KILROY eignaðist sænsku ferðaskrifstofuna Winberg Travel. Sextán hótelíbúðir kláruðust að Hverfisgötu 78.
2017
Fjárfest í fjárfestingarsjóðnum Vonzeo í Kanada. RR hóteli skipt upp í rekstrarfélag og fasteignafélag.
2015
Fasteignirnar Lindargata 11 og Hverfisgata 78 keyptar fyrir hótelið. Rekstrarfélag Íslenskrar fjárfestingar stofnað.
2012
KILROY kaupir starfsemi Wasteels Rejser í Danmörku og hlut í Our World. Sólstöður stofnaðar um atvinnumiðlun á heilbrigðissviði.
2010
Uppbygging Reykjavík Residence hefst; hótelið opnar í mars 2011.
2009
Keyptur 90% hlutur í Öldungi hf. sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún.
2007
Eignarhaldsfélagið KILROY stofnað og fjárfest í KILROY International.
2004
Fyrstu fasteignafjárfestingar félagsins á Kársnesi í Kópavogi.
2002
Íslenskar fasteignir stofnaðar.
1999
Íslensk fjárfesting stofnuð utan um fjárfestingar eigendanna.