Hjá móðurfélaginu starfa um 20 starfsmenn sem sinna fjárfestingum, þróun verkefna, fjármálastjórnun, mannauðsstjórnun, lögfræði, framkvæmdastjórn, upplýsingatækni og utanumhaldi. Hjá fyrirtækjum í meirihlutaeigu Íslenskrar fjárfestingar starfa yfir 1.000 manns.

Arnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA frá viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona. Hann hefur starfað um langt árabil í ferðageiranum, hvort tveggja á Íslandi og erlendis, verið stjórnarformaður KILROY International frá 2007 og stjórnarformaður Íslenskrar fjárfestingar frá 1999. Áður starfaði Arnar m.a. sem framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá KILROY, aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri flugfélagsins Atlanta og stjórnarformaður CAOZ.

Þórir er byggingarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA frá viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona. Hann hefur starfað í ferðageiranum, heilbrigðisgeiranum og fasteignageiranum í meira en 30 ár, sat í átta ár í stjórn Landspítala og hefur setið í opinberum nefndum á heilbrigðissviði. Þórir hefur verið framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar frá 1999. Áður starfaði hann hjá Icelandair, Icelandspring og Philips.
Björn Þór Karlsson Björn Þór er lögmaður fyrirtækisins og framkvæmdastjóri Stafa. Hann hefur áður starfað hjá Thule Investments, Lögfræðistofu Gunnars Thoroddsen, Legis lögfræðistofu og við eigin rekstur. BA- og meistaragráða í lögfræði frá Háskóla Íslands og réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi.
Eva Ýr Gunnlaugsdóttir Eva Ýr er framkvæmdastjóri mannauðsmála með víðtæka reynslu af mannauðsstjórnun — áður hjá Sóltúni, Alvotech, Landspítala, Össuri og NOVA. MBA frá Háskólanum í Reykjavík, MS í mannauðsstjórnun og BS í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands.
Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir Guðrún Drífa er fjármálastjóri. B.Sc. í viðskiptafræði og M.Acc. í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands auk prófs í löggildingu í endurskoðun. Starfaði sjö ár hjá Deloitte og átta ár sem fjármálastjóri innan Ó. Johnson & Kaaber – ÍSAM samstæðunnar.
Magnús EdvardssonMagnús er framkvæmdastjóri fjárfestinga með yfir 15 ára reynslu á fjármálamarkaði — í fyrirtækjaráðgjöf hjá Kviku banka og forverum 2009–2023 og þar á undan hjá Kaupþingi. M.Sc. í fjárfestingarstjórnun og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Svanbjörn ThoroddsenSvanbjörn er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Starfaði 17 ár hjá KPMG, síðast sem sviðsstjóri ráðgjafarsviðs, við samruna og yfirtökur, stefnumótun og umbreytingar, m.a. á heilbrigðismarkaði. Áður forstjóri Flögu og stjórnandi hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, Íslandsbanka og Straumi.
Íslensk fjárfesting þjónustar fjölbreytt dótturfélög sín.
Innan samstæðunnar starfar yfir 1.000 manns á Íslandi og í Evrópu — á hótelum, hjúkrunarheimilum, í verslunum, hjá ferðaskrifstofum KILROY í átta löndum og í fasteignaþróun.
Um 20 starfsmenn sinna fjárfestingum, þróun verkefna, fjármálastjórnun, mannauðsstjórnun, lögfræði, framkvæmdastjórn, upplýsingatækni og utanumhaldi.
Stefna eigendanna er að styrkja grunnstoðirnar fjórar og vera meirihlutaeigandi eða í leiðandi stöðu í þeim verkefnum sem fjárfest er í.
Mikið var lagt í að skapa gott vinnurými í opnu umhverfi og þar er nægur möguleiki til vaxtar fyrir öll félög samstæðunnar — Íslenskar fasteignir, Stafir, Sóltún, Flóra Collection, Sólstöður, Leitar og söluskrifstofa KILROY starfa þar með móðurfélaginu.