Fréttir af samstæðunni og dótturfélögum hennar.

Reykjavík Residence Hotel, Tower Suites Reykjavík, ODDSSON, 201 Hotel og Port9 koma nú fram undir sameiginlegu vörumerki, Flóra Collection, ásamt nýjum sameiginlegum vef. Hver staður heldur sínu nafni, starfsfólki og sérkennum.

Íslensk fjárfesting hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, stöðugleika og traustan rekstur.

Íslensk fjárfesting hefur sett fasteignafélagið Stafir í söluferli. Safnið telur níu fasteignir, um 10,2 þúsund fermetra, að stórum hluta sögufræg hús í miðborg Reykjavíkur sem hafa verið endurgerð með áherslu á upprunalegt útlit.

Svanbjörn Thoroddsen hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Hann kemur frá KPMG, þar sem hann starfaði í 17 ár, síðast sem sviðsstjóri ráðgjafarsviðs.

Hagnaður ársins 2025 nam 586,3 milljónum króna og meira en fjórfaldaðist milli ára. Eignir samstæðunnar voru tæplega 25,7 milljarðar og félagið býst við góðu rekstrarári 2026 á öllum fjórum sviðum sínum.

Fyrsta sending byggingareininga fyrir nýtt 99 rýma hjúkrunarheimili við Hringhamar 43 í Hafnarfirði er komin til landsins. Íslenskar fasteignir annast framkvæmdina og stefnt er að verklokum í lok febrúar 2027.

Andrés Jónsson hefur tekið við starfi forstjóra Flóra Collection og mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og vöxt félagsins. Hann hefur víðtæka reynslu úr íslenskri ferðaþjónustu og starfaði um árabil hjá Icelandair.

Gunnar Sigurðsson hefur tekið við sem stjórnarformaður Sóltúns heilbrigðisþjónustu og Sigríður Gunnarsdóttir tekur sæti í stjórn. Önnu Birnu Jensdóttur er þakkað einstakt framlag til Sóltúns í 25 ár.

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og Halla Thoroddsen forstjóri Sóltúns tóku fyrstu skóflustunguna að stækkun hjúkrunarheimilisins. Hjúkrunarrýmum fjölgar úr 92 í 159 og verklok eru áætluð árið 2027.