Andrés Jónsson tekur við sem forstjóri Flóra hotels
Andrés Jónsson hefur tekið við starfi forstjóra Flóra hotels. Hann mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og vöxt félagsins.
Á komandi misserum verður lögð áhersla á að styrkja enn frekar upplifun gesta, nýta tækni til að bæta þjónustu og starfsemi og þróa bæði núverandi og nýjar eignir.
Hjá Flóru starfa 120 manns og meðal vörumerkja félagsins eru Reykjavík Residence, Tower Suites Reykjavík, ODDSSON, 201 Hótel og Port 9 vínbar. Flóra hotels er í eigu Íslenskrar fjárfestingar.
Ég hlakka til að leiða félagið inn í næsta vaxtarskeið og byggja áfram á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður. Flóra er með öflugt teymi, mikla ástríðu fyrir góðri upplifun gesta og fjölbreytt safn hótela. Við erum að vinna að spennandi verkefnum með góðum samstarfsaðilum. Það eru áhugaverðir tímar í ferðaþjónustu og góð tækifæri fyrir Flóru. Flóru teymið hefur á síðustu mánuðum unnið saman að skýrum áherslum og lagt grunn að vegferð þar sem við þróum, mótum og vöxum. Við hlökkum til að kynna ný hótel á komandi misserum sem mæta betur þörfum og væntingum vaxandi hóps ferðamanna.
Andrés Jónsson, forstjóri Flóra hotels
Reynsla úr íslenskri ferðaþjónustu
Andrés hefur víðtæka reynslu úr íslenskri ferðaþjónustu. Hann starfaði um árabil hjá Icelandair og gegndi þar stjórnunarstörfum, meðal annars sem framkvæmdastjóri Feria, forstöðumaður Icelandair Packages, forstöðumaður leiðakerfis og forstöðumaður sölu- og markaðsmála í Evrópu.
Undanfarið hefur Andrés sinnt ráðgjöf, þróunarverkefnum og stjórnarsetu. Hann situr í stjórn Íslenska ferðaklasans. Andrés er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.
Andrés hefur víðtæka reynslu og þekkingu á ferðaþjónustu og því mikill fengur fyrir Flóru að fá hann til að leiða áframhaldandi vöxt og þróun félagsins. Flóra stendur á sterkum grunni og vaxtatækifærin eru víða. Við höfum metnað til þess að halda áfram að sækja fram og það eru því spennandi tímar framundan hjá Flóra hotels.
Þórir Kjartansson, stjórnarformaður Flóra hotels
Ferðaþjónusta · florahotels.is ↗ · Umfjöllun Viðskiptablaðsins ↗