Nýtt hjúkrunarheimili rís í Hamranesi
Fyrsta sending byggingareininga fyrir nýtt hjúkrunarheimili við Hringhamar 43 í Hafnarfirði er komin til landsins. Heimilið er hannað fyrir allt að 99 hjúkrunarrými og stefnt er að verklokum í lok febrúar 2027.
Íslenskar fasteignir annast framkvæmdina í samstarfi við Volumetric Building Companies, VBC.
Húsið verður reist úr 111 forsmíðuðum stáleiningum sem koma til landsins í tveimur sendingum. Síðari sendingin er væntanleg í október og er gert ráð fyrir að húsið verði fullreist í lok þess mánaðar. Þá tekur við lokafrágangur.
Ný byggingaraðferð hér á landi
Byggingaraðferðin er ný við uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi en hefur verið notuð erlendis um áratugaskeið. Einingarnar eru framleiddar samhliða jarðvinnu og grunnframkvæmdum á byggingarstað, sem styttir framkvæmdatímann verulega. Hjúkrunarrýmin koma fullinnréttuð til landsins en gengið verður frá sameiginlegum rýmum og miðkjarna eftir uppsetningu.
Verkefnið hefur verið í þróun frá árinu 2023. Íslenskar fasteignir hafa unnið náið með Sóltúni heilbrigðisþjónustu að þarfagreiningu og hönnun hússins. Reynsla af rekstri hjúkrunarheimila hefur þannig mótað hönnunina frá upphafi, með þarfir íbúa, vinnuflæði starfsfólks, öryggi og aðgengi að leiðarljósi. Arkís leiðir hönnun hússins og byggingarferlið er BREEAM vottað.
Heimilið verður hluti af nýrri íbúabyggð í Hamranesi, nærri skóla og leikskóla, með tengingu við daglegt líf í hverfinu.
Fyrirmynd að frekari uppbyggingu
Þekking, hönnunarforsendur og verkferlar sem hafa orðið til við þróun verkefnisins munu nýtast við framtíðaruppbyggingu Íslenskra fasteigna á þessu sviði. Hamranes getur þannig orðið fyrirmynd að hraðari og fyrirsjáanlegri uppbyggingu sérhannaðra hjúkrunarheimila.