Íslensk fjárfesting

Svanbjörn Thoroddsen til liðs við Íslenska fjárfestingu

Svanbjörn Thoroddsen hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Íslenskri fjárfestingu og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Um er að ræða nýtt hlutverk hjá Íslenskri fjárfestingu en Svanbjörn mun meðal annars styðja við viðskiptaþróun og áframhaldandi uppbyggingu félagsins og dótturfélaga.

Svanbjörn Thoroddsen
Svanbjörn Thoroddsen, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar.

Svanbjörn kemur til Íslenskrar fjárfestingar frá KPMG, þar sem hann hefur starfað síðastliðin 17 ár, síðast sem sviðsstjóri ráðgjafarsviðs. Á þeim tíma hefur hann leitt fjölmörg verkefni tengd samruna fyrirtækja, kaupum og sölu á fyrirtækjum, stefnumótun og umbreytingum fyrirtækja og opinberra aðila, auk umfangsmikilla verkefna á heilbrigðismarkaði.

Svanbjörn býr yfir víðtækri reynslu úr ráðgjöf, fjármálastarfsemi og heilbrigðistækni. Áður en hann hóf störf hjá KPMG starfaði hann meðal annars sem forstjóri Flögu auk þess að gegna stjórnunarstörfum hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, Íslandsbanka og Straumi fjárfestingarbanka.

Við hjá Íslenskri fjárfestingu erum virkilega ánægð með að fá Svanbjörn til liðs við okkur. Fyrirtæki samstæðunnar eru mörg hver í miklum vexti og því fylgja ný tækifæri, ör þróun og nauðsynlegar umbreytingar. Svanbjörn hefur mikla reynslu af slíkum verkefnum og djúpa innsýn í fyrirtæki í ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og á sviði fasteigna, þar sem við sjáum mikil sóknarfæri. Það er því mikill fengur að fá hann inn í okkar sterka teymi og ég er sannfærður um að þekking hans og reynsla muni nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækja samstæðunnar og við að hámarka árangur þeirra og verðmæti.

Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar

Íslensk fjárfesting er fjárfestingarfélag í eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar. Félagið hefur á undanförnum árum byggt upp fjölbreytt fyrirtæki með áherslu á þjónustu á ólíkum sviðum. Innan samstæðunnar eru félög sem starfa á sviði ferðaþjónustu, fasteigna, heilbrigðisþjónustu og útivistar og hreyfingar. Framundan er áframhaldandi uppbygging og vöxtur í félögum samstæðunnar.

← Allar fréttir