Fasteignafélagið Stafir sett í söluferli
Fjárfestingarfélagið Íslensk fjárfesting hefur sett fasteignafélagið Stafir – hótel ehf. í söluferli. Eignasafnið telur níu fasteignir, samtals um 10,2 þúsund fermetra, og er að fullu í útleigu. Fasteignafélagið var bókfært á 11 milljarða króna í árslok 2025.
Úrdráttur úr frétt Viðskiptablaðsins, viðtalið í heild má nálgast hér: vb.is
Þórir Kjartansson, sem á Íslenska fjárfestingu með Arnari Þórissyni, segir að þeir telji tímabært að nýir eigendur taki við fasteignasafninu nú þegar meira en 15 ár eru liðin frá því að þeir eignuðust fyrstu eignirnar í safninu. Þá sé Íslensk fjárfesting með mörg önnur verkefni í deiglunni, þar á meðal uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Þórir segir að um sé að ræða einstakt fasteignasafn hvað varðar sögulegt gildi fasteignanna. Stór hluti safnsins samanstandi af sögufrægum húsum í miðborg Reykjavíkur sem hafi verið endurgerð með sérstakri áherslu á að varðveita sögu þeirra og upprunalegt útlit.
Fasteignasafnið samanstendur að stórum hluta af fasteignum sem eru í útleigu og rekstri til Flóra Collection, sem er hótelrekstrarfélag sem er í eigu Íslenskrar fjárfestingar, en innan Flóra Collection eru bæði Reykjavík Residence hótel og Oddsson hótel.
Þessa dagana er verið að kynna fasteignasafnið fyrir nokkrum líklegum kaupendum og á Þórir von á því að safnið verði selt í heilu lagi.
Þetta er þannig safn að þú finnur aldrei aftur svona fasteignir. Við endurbyggðum eignirnar í upprunalegri mynd til þess að halda í þennan miðbæjarbrag og varðveita söguna. Það er ekki síst það sem situr eftir hjá okkur og það sem við erum stoltir af.
Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar
Hann bætir við að það sé ekki oft sem svona byggingar komi inn á markaðinn til sölu í einu lagi, flestar hluti af einu vörumerki.
Einstakt fasteignasafn
Upphaf verkefnisins má rekja til þess að árið 2010 keyptu Íslensk fjárfesting Hverfisgötu 45, Veghúsastíg 7 og Veghúsastíg 9, þar sem Port 9 vínbar er nú til húsa, ásamt Reykjavík Residence hóteli. Húsin hýstu á þeim tíma gistiheimili.
Þórir segir að Hverfisgata 45, sem byggð var á árunum 1912-1915, sé líklega meðal allra fyrstu steinsteyptu húsa Reykjavíkur. Eftir brunann mikla árið 1915 bannaði Reykjavík byggingu timburhúsa í byggð og hófst þá tímabil steinsteyptra húsa í miðbænum.
„Þá rann upp fyrir okkur að ef við ætluðum að gera eitthvað þarna þá yrði það að vera samofið sögunni. Um það hefur þetta verkefni snúist allar götur síðan.“
Þeir ákváðu að endurbyggja húsið að Hverfisgötu 45 í samráði við Minjastofnun og Húsafriðunarnefnd til að halda í upprunalegt útlit að utan. Húsið var hins vegar tekið algjörlega í gegn að innan, jafnvel þannig að á tímabili voru gröfur inni til að dýpka neðstu hæðina.
Að sögn Þóris var einnig ráðist í umfangsmiklar endurbætur á öðrum fasteignum í safninu með það að markmiði að viðhalda upprunalegu útliti. Hvað innanhúshönnunina varðar segir hann að vandað hafi verið til verka til þess að varðveita sérkenni húsanna en á sama tíma að forðast að hönnunin yrði of bókstafleg. Rýmin hafi því verið endursköpuð með nútímalegri hönnun og húsgögnum sem kallist á við eldri tíma. Innanhússarkitektinn Hanna Stína Gunnarsdóttir kom að hönnun síðari verkefna.
„Öll þessi hús eru gjörbreytt og í raun glæný í útliti. Þau eru samt öll eins og þau voru að utan í gamla daga.“
Sama nálgun var höfð að leiðarljósi þegar fleiri hús bættust við safnið, þar á meðal Hverfisgata 21 við hlið Þjóðleikhússins. Umrætt hús var hannað sem forsætisráðherrabústaður fyrir Jón Magnússon, þá bæjarfógeta í Reykjavík og seinna fyrsta forsætisráðherra Íslands.
„Það er klárlega ekki ódýrasta leiðin að endurgera alveg svona gömul hús,“ segir Þórir og nefnir í því samhengi Lindargötu 11. „Það var gjörsamlega tekið í gegn og við tjökkuðum það upp um tvo metra í leiðinni til þess að bæta nánast við einni hæð. Það var engin smotterísframkvæmd og það hefði í raun verið mun auðveldara að byrja frá grunni og byggja nýtt hús.“
Hótelrekstur í fasteignum félagsins
Árið 2011 stofnaði Íslensk fjárfesting vörumerkið Reykjavík Residence utan um íbúðahótelin. Í dag telur Reykjavík Residences 101 íbúð í tíu húsum í miðborginni, auk Port 9 vínbars. Að jafnaði gista um 350 manns í íbúðunum á degi hverjum.
„Hugmyndin var alltaf sú að gesturinn myndi fá alvöru tilfinningu fyrir Reykjavík í þessum sögufrægu húsum. Sagan er skrifuð á alla veggi í myndum og máli. Að sama skapi vildum við skapa heild þar sem saga húsanna og nýtt hlutverk þeirra færu saman á eðlilegan hátt.“
Þórir segir að þegar vörumerkið var sett á laggirnar hafi fá sem engin íbúðahótel í hærri gæðaflokki verið til á Íslandi. Hugmyndin hafi meðal annars sprottið af eigin reynslu hans og Arnars að ferðast með fjölskyldum sínum erlendis.
„Þegar maður var að ferðast með tvö, þrjú eða jafnvel fjögur börn þá voru ekki margir valkostir. Maður var oft að panta tvö eða þrjú hótelherbergi. Við vildum að Reykjavík Residence yrði heimili fólks að heiman – að viðskiptavinir gætu gist í stærri og huggulega innréttuðum íbúðum og væru einu símtali frá því að fá alla þá þjónustu eða aðstoð sem á þarf að halda. Markmiðið var alltaf að veita frábæra þjónustu í hágæða íbúðum.“
Íbúðahótelin hafa notið mikilla vinsælda og eru í einum af efstu sætunum yfir gistingu í Reykjavík á bókunarsíðum á borð við Booking.com og Expedia. Þórir segir að bandarískir ferðamenn sæki sérstaklega í gistingu af þessu tagi.
Nýjasta viðbótin er bygging sem samanstendur af Laugavegi 33 og 35 auk Vatnsstígs 4. Framkvæmdir kláruðust árið 2025 og var húsið, sem inniheldur 38 hótelíbúðir, afhent Reykjavík Residence í lok síðasta árs. Í kjölfarið taldi Íslensk fjárfesting að nú væri rétti tíminn til að láta staðar numið og einbeita sér í auknum mæli að öðrum verkefnum.
„Kosturinn við að selja fasteignir er að þær fara ekki neitt. Maður getur áfram keyrt fram hjá þeim öðru hvoru og verið stoltur af því sem við gerðum í sögu Reykjavíkur með því að endurbyggja þetta fasteignasafn.“
Stafir eiga einnig bygginguna sem hýsir Oddsson hótel við Grensásveg 18, í gamla ASÍ-húsinu, sem var endurbyggt skömmu fyrir Covid-faraldurinn. Þar er markhópurinn ferðamenn sem hyggjast ferðast um landið en stoppa eina eða tvær nætur í Reykjavík og vilja greiðan aðgang að bílastæðum.
Fasteignasafnið
Hverfisgata 21 — Steinhús byggt árið 1912 fyrir Jón Magnússon, fyrsta forsætisráðherra Íslands eftir að við urðum fullvalda þjóð, og hýsti Danakonung og drottningu í opinberri heimsókn árið 1926.
Hverfisgata 45 — Steinhús byggt árið 1914. Listmálarinn Louisa Matthíasdóttir ólst upp í húsinu. Það hýsti síðar sendiráð Noregs og Söngskólann í Reykjavík.
Vatnsstígur 2 / Laugavegur 33–35 — Vatnsstígur 4 var byggður árið 1916 og er eitt fárra íbúðarhúsa frá upphafsárum steinsteypualdar með steinsteyptu þaki. Laugavegur 33 er eitt af elstu hornhúsum götunnar og tengist m.a. fyrstu endurminningum Halldórs Laxness.
Lindargata 11 — Ástráður Hannesson byggði fyrstu gerð hússins en seldi það svo árið 1906 til Ástráðs Sigurðar Jónssonar bóksala og mági hans, Vilhjálms Árnasonar trésmiðar.
Veghúsastígur 7 — Steinsteypt og að hluta til steinhlaðið hús byggt árið 1920, hannað af Erlendi Einarssyni arkitekt. Húsið hýsir í dag vínbarinn Port 9 og fjórar hótelíbúðir.
Veghúsastígur 9 og 9a — Veghúsastígur 9 er timburhús sem var byggt árið 1910 af Bergi Einarssyni. Hann rak þar sútunarverkstæði og verslun. Á árunum 1911–1914 byggði Bergur þrjá skúra á Veghúsastíg 9a.
Hverfisgata 78 — Bókfellshúsið var byggt á árunum 1945–1947 en bókbandsstofan Bókfell hafði verið stofnuð árið 1943. Margar prentsmiðjur hafa verið í húsinu, sú síðasta prentsmiðjan Formprent, sem var til húsa á fyrstu hæðinni frá 1970 til 2016.
Grensásvegur 18 — Byggingin að Grensásvegi 16a var byggð á árinu 1975 og var upphaflega hönnuð m.a. fyrir höfuðstöðvar ASÍ. Eftir miklar endurbætur opnaði í byggingunni Oddsson hótel í júní 2019.