Íslensk fjárfesting

Íslensk fjárfesting í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026

Við erum stolt af því að Íslensk fjárfesting hafi hlotið viðurkenningu Creditinfo sem eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026.

Steinar, Eva, Björn og Guðrún með viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Steinar, Eva, Björn og Guðrún með viðurkenninguna.

Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, stöðugleika og traustan rekstur.

Á bak við þennan árangur stendur öflugt starfsfólk sem leggur metnað sinn í verkefnin og vinnur á hverjum degi að því að byggja upp og styrkja starfsemi félagsins.

Við lítum á viðurkenninguna sem ánægjulega staðfestingu á þeirri vegferð sem við erum á og um leið hvatningu til að halda áfram að gera góða hluti enn betur.